Tvöfaldir í roðinu...

Þarf sosum ekki að koma á óvart. Svíar hafa lengi verið tvöfaldir í roðinu. Í seinni heimsstyrjöld áttu þeir ákaflega náin og góð samskipti við Þriðja Ríki Hitlers, veittu þeim m.a. afnot af sænska járnbrautakerfinu til að flytja vopn og herlið til Finnlands þar sem finnar börðust við heri Stalíns. Sama átti við um Noreg en svíar leyfðu þjóðverjum að fara um sænskt land og nota sænsku járnbrautirnar í tenglum við hernám og hersetu Noregs. Sænska lögreglan var m.a. ansi höll undir samstarf við nasista og mörg dæmi um að þeir hafi skilað þeim strokufólki, sbr. dönskum gyðingum. Sama má segja um kalda stríðið en svíar dásömuðu mjög hlutleysi sitt í því en áttu svo í bullandi samstarfi við NATO og USA.


mbl.is Palme átti samstarf við Bandaríkin á námsárum sínum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband