Þriðjudagur, 1. janúar 2008
Ekki ofmetnast.....
Er þetta ekki einum of? A.m.k. finnst mér Björn gera sjálfum sér soldið hátt undir höfði með því að ætla að fjöldi manns leggi á hann fæð. Ekki er mér persónulega í nöp við hann, mér er reyndar slétt sama hvoru megin veggjar hann liggur, en ég legg hinsvegar fæð á það sem hann stendur fyrir. Þ.e. ofur-íhaldsmennsku sem etur allt sem úr rassi USA-manna kemur. Ég er nú bara þannig innréttaður að geta ekki með nokkru móti fellt mig við fasista eða fasistastjórnir og að íslensk stjórnvöld skuli með einum eða öðrum hætti styðja slíkt er ofar mínum skilningi.
En skaupið var bara déskoti gott!!
Læknar ofarlega í huga Björns um áramót | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.