Mánudagur, 21. janúar 2008
Rugludallurinn Ástþór Magnússon
Var að enda við að lesa "grein" eftir Ástþór Magnússon fyrrverandi forsetaframbjóðanda. Ástþór fer þar mikinn um aðdraganda síðustu forsetakosninga og ýjar að því að brögð hafi verið í tafli, m.a. með því að fjölmiðlar hafi ekki sýnt honum nægan áhuga og virðingu. Skitprat!! Auðvitað eyða alvöru fjölmiðlar ekki pappír og bleki í að fjalla um frambjóðanda sem enginn tekur alvarlega. Reyndar efast ég um að Ástþór taki sjálfan sig alvarlega a.m.k. ef miðað er við hvernig hann talar og kemur fram. Það er þekkt að í flestum lýðræðisríkjum bjóða rugludallar sig fram, þekkt dæmi eru t.d. frá Bretlandi og víðar en nærtækasta dæmið er auðvitað núverandi forseti USA, en það sýnir okkur m.a.s. að hvaða fífl sem er getur náð kjöri. Þetta er eitt af einkennismerkjum lýðræðisins og ekkert athugavert við að hvaða kjaftaskur og idjót sem er fái að nýta rétt sinn til að bjóða sig fram að uppfylltum þeim almennu skilyrðum sem sett eru. Því miður er það ekki skilyrði hér á landi að frambjóðendur séu með fulle fem eða almennt húsum hæfir. Þá hefði ÁM aldrei komist í framboð.
Í grein sinni talar ÁM um "rússsneskt lýðræði" og einhvern "heimsfrægan prófessor" sem var sundurklipptur í Kastljósi og líkir ÁM þessu við stjórnarhætti Milosevic. Prófessorinn heimsfrægi átti víst að geta sýnt framá hversu ofsalega gott það yrði fyrir friðinn í heiminum ef ÁM yrði forseti lýðveldisins Íslands. Þessi samlíking við Júgóslavneska uber-þjóðernissinnan Milosevic sýnir auðvitað betur en allt hvaða hugsanagang ÁM hýsir og hvaða hug hann ber til ættjarðar sinnar og þjóðarinnar sem hana byggir. Svei!!
Næst gerir ÁM að því skóna að forsetakosningar gætu bara orðið hin besta lyftistöng fyrir efnahag landsins úr því sveitarfélögin fá einhverjar krónur fyrir hvert greitt atkvæði frá ríkinu. Einmitt. Þá er náttlega um að gera að kjósa bara á hverjum mánudegi árið út og inn. Þannig verður jú aldrei kreppa á Íslandi, a.m.k. ekki ef notað er reiknilíkan ÁM.
Og svo segir hann að það sé fjarstæða að kosningar séu einhver kostnaðarbaggi á þjóðfélaginu. Og svei mér ef það er ekki það eina sem hann fer rétt með í þessari grein sinni. Bagginn er hins vegar misheppnaður bíssnessmaður sem þjóðin hefur þegar hafnað tvisvar og að auki búinn að fá mikið meira en nóg af. Mer finnst a.m.k. langsótt að við skattborgarar greiðum fyrir kosningar bara til að ÁM geti hlúð aðeins að ofvöxnu egói sínu, hvort sem hann þykist gera það í nafni friðar eða ódýrs skeinipappírs.
Það getur vel verið að ÁM sé friðarsinni en ég held að hann sé fyrst og fremst "Ástþórssinni" og beri ekki hag nokkurs annars fyrir brjósti. En ef hann er virkilega slíkur friðarsinni sem hann þykist vera þá ætti hann í raun að eyða orku sinni þar sem hans er þörf. T.d. friðargæsla? Írak t.d.??
Farðu í friði Ástþór Magnússon, en gerðu það bara FARÐU!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 21. janúar 2008
Hvíl í friði...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 21. janúar 2008
Rangt Villi...
![]() |
Ólafur og Vilhjálmur stýra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 21. janúar 2008
Hrikalegt þegar maður lendir í þessu...
![]() |
Vaknaði í eigin kistulagningu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 20. janúar 2008
Góð íþrótt, gulli betri...
Frábært. Loksins farið að keppa í þessari gömlu íþrótt sem hefur fylgt mannkyni frá upphafi. Ég geng út frá því sem vísu að héðan verði sent harðsnúið lið til að taka þátt og þá er nú ekki seinna vænna að velja í liðið og hefja æfingar. Mín trú er að lang lang flestir íslendingar h afi nú amk einhverja reynslu af að stunda þessa íþrótt þannig að eflaust verður frekar erfitt að velja í liðið. Kannski einhver undankeppni á borð við undankeppnina fyrir Júróvisjón væri við hæfi, Páll Magnússon gæti etv skutlað þessu inná sunnudagskvöldin strax eftir fréttir. Hver veit nema þarna sé loksins tækifæri til að losa sig undan Júróvisjón klafanum, að þarna sé komin keppni sem við gætum unnið í alvöru, ekki bara í þykjustunni??
Áfram Ísland. Taka á því og KOMA svo!!
![]() |
Danmerkurmót í sjálfsfróun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 20. janúar 2008
Og hvað??
Hugmyndir félaga Stalíns lifa enn góðu lífi. Hann sendi jú heilu þjóðirnar og þjóðarbrotin í betrunarvist á þessu fallega svæði þar sem er nóg af hreinu lofti og svo sá hann til þess að þeim leiddist ekki heldur hefðu nóg að gera. Og sjáið bara hvar austur Evrópu þjóðirnar standa í dag, nú flytja þeir út bíssnessmenn til okkar afskekta lands, menn sem koma hingað með allskyns hugmyndir um innflutning á hinu og þessu og láta sig ekki muna um að verja heiður ungrar íslenskrar stúlku sem fíknó er að bögga um hánótt. Lifi fjölmenningin.
Kannski við ættum að leigja eins og eina skemmu af vini okkar Pútín og senda okkar vandræðaunglinga sömu leið? One way ticket??
![]() |
Unglingur sendur í betrunarvist til Síberíu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 20. janúar 2008
Jesús...
Vona að hér sé ekki annar Kristinn H Gunnarsson í uppsiglingu. Annars dæmigert fyir framsóknarmann, tækifærismennska af verstu gerð. Annars geta innanflokkserjur í Framsókn varla verið annað en að tala við sjálfan sig í speglinum. Vona bara að hann fái sér bjór og sættist við sjálfan sig svo þessum erjum linni. En hann er flottur í tauinu kallinn, í gjörspilltum jakkafötum og einkavinavæddum skóm.
![]() |
Björn Ingi úr Framsóknarflokki? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 20. janúar 2008
Að sjálfsögðu..
![]() |
Fischer hvíli í íslenskri mold |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 18. janúar 2008
Bobby Who??
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 15. janúar 2008
Bráðfyndinn...

![]() |
Ástþór kærir Þórunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)